Formáli
Þetta vefsetur er stutt kynningarhandbók um Íslam og samanstendur af þremur
köflum.
Fyrsti kaflinn, „ Vitnisburðir um þau sannindi sem felast í Íslam, “ svarar mikilvægum spurningum sem sumir spyrja:
A) Er Kóraninn orðrétt frá Guði kominn, opinberaður af honum?
B) Er Múhameð sannarlega spámaður, sendur af Guði?
C) Er Íslam sannarlega trú frá Guði komin?
Í þessum kafla er greint frá sex mismunandi sönnunum fyrir þessu:
(1)Vísindaleg kraftaverk í hinni helgu bók, Kóraninum: Í þessum hluta eru reifaðar (með myndum) nokkrar nýlega uppgötvaðar vísindalegar staðreyndir, sem koma fram í Kóraninum sem opinberaðist fyrir fjórtán öldum.
(2) Sú erfiða þraut að semja nokkuð sem jafnast að fegurð á við kafla í hinni helgu bók Kóraninum: Í Kóraninum skorar Guð á mennina að skapa einn kafla sem jafnast að fegurð á við kafla í hinni helgu bók Kóraninum. Allt frá því Kóraninn var opinberaður fyrir fjórtán öldum hefur engum tekist að leysa þessa þraut, jafnvel þó að stysti
kafli í Kóraninum (108. kafli) sé aðeins tíu orð.
(3) Spádómar Biblíunnar um komu Múhameðs , spámanns Íslams: Í þessum hluta eru reifaðir ýmsir þeir spádómar Biblíunnar sem spá fyrir um komu Múhameðs spámanns .
(4)Vers í Kóraninum sem geta óorðinna atburða sem síðar rættust: Í Kóraninum er getið óorðinna atburða sem síðar rættust, t.d. sigurs Rómverja á Persum.
(5)Kraftaverk sem Múhameð spámaður vann: Mörg kraftaverk vann Múhameð spámaður . Um þau báru margir vitni.
(6) Fábrotnir lifnaðarhættir Múhameðs : Hér kemur fram með skýrum hætti að Múhameð var ekki falsspámaður kominn til að öðlast veraldleg gæði, frægð eða völd.
Af þessum sex sönnunum getum við dregið þá ályktun að:
· Kóraninn hlýtur að vera orðrétt frá Guði kominn, og opinberaður af honum.
· Múhameð er sannarlega spámaður, sendur af Guði.
· Íslam er sannarlega trú frá Guði komin.
Viljum við vita hvort trú sé sönn eða föls ættum við ekki að byggja á tilfinningum, skoðunum eða hefðum. Við skyldum frekar byggja á rökhyggju og vitsmunum.
Þegar Guð sendi spámenn sína studdi hann þá með kraftaverkum og jarteiknum sem sönnuðu að þeir væru sannlega spámenn sendir af Guði og að trúin sem þeir
boðuðu væri sönn.
2. kaflinn, „ Hvernig má Íslam verða að gagni” reifar það gagn sem trúuðum
einstaklingum stendur til boða, svo sem:
(1)Hliðið að eilífri paradís.
(2) Frelsun frá vítiseldinum.
(3) Sönn hamingja og innri friður.
(4) Fyrirgefning fornra synda.

Í 3. kaflanum, „Almennar upplýsingar um Íslam”, eru reifaðar
almennar upplýsingar um Íslam, leiðréttar ýmsar ranghugmyndir um Íslam og
algengum spurningum svarað, eins og:
· Hvað segir Íslam um hryðjuverk?
· Hver er staða konunnar í Íslam?